Frí heimsending með öllum pöntunum yfir 3.600 kr.

Algengar Spurningar

Sjálfbærni

Smáþörungar ÖRLÖ eru ræktaðir með 100% endurnýjanlegri orku, auk þess sem við nýtum náttúruleag uppsrettu kolefnis og íslenskt jökulvatn. Framleiðsluferlið er hið fyrsta sinnar tegundar sem er kolefnisneikvætt. Við notum líka 99% minna land og vatn en aðrir framleiðendur.

ÖRLÖ glerkrukkan þín er búin til úr fyrsta flokks ítölsku gleri. Það er hægt að nota hana aftur og aftur eða nýta hana síðar meir sem blómapott eða pennastand. Hún er endurvinnanleg að fullu ef þú hættir dag einn að nota hana.

Þú getur endurunnið álspreyhylkið þitt hvar sem er. Settu það einfaldlega í endurvinnslutunnu.

Allar umbúðir sem notaðar eru í innpökkun eru framleiddar úr endurunnum pappír og blekið sem við notum til að skrifa á þær er búið til úr smáþörungum! Hægt er að endurvinna umbúðirnar að nýju eða jafnvel rífa þær niður og nota í moltutunnu.

Já, allar vörur frá ÖRLÖ eru vegan. Við höfum skuldbundið okkur til þess að vernda og hlúa að plánetunni okkar og náttúruauðlindum hennar á sama tíma og við bjóðum upp á vöru sem allir geta neytt, óháð mataræði. Við lítum svo á að enginn eigi að þurfa að neita sér um holla næringu vegna hugsjóna sinna eða mataræðis.

Smáþörungaræktun okkar hefur engin slæm áhrif á öll þau dýrmætu vistkerfi sem þrífast á plánetunni okkar, hvort sem um er að ræða úthöf, ár eða ræktarland. Hver einasta flaska sem við framleiðum af Omega-3 eða meðgöngu DHA forðar 110 fiskum frá veiði til olíuframleiðslu. Við notum jafnframt 99% minna land og vatn í sjálfbæru ræktuninni okkar á Íslandi en aðrir framleiðendur um víða veröld.

Þjónusta

Vörurnar okkar eru aðgengilegar viðskiptavinum um allt land í gegnum orlo.is og hjá Heilsuver á Suðurlandsbraut 22. Samstarfsaðilar okkar, Dropp og Gorilla Vöruhús sjá um að senda vörurnar til viðskiptavina.

Áskriftarleiðirnar okkar eru bæði góðar fyrir jörðina og veskið þitt. Þegar þú kemur í áskrift færðu 15% afslátt af ÖRLÖ vörunum þínum.

Þetta er frekar einfalt. Þú velur magnið og velur hversu oft þú vilt fá sendingar, t.d. vikulega eða mánaðarlega. Áskriftin þín endurnýjast svo sjálfkrafa þar til þú segir henni upp. Enginn uppsagnarfrestur er á áskriftarleiðum okkar, þú stjórnar algjörlega ferðinni.

Frábær spurning. Það virkar einfaldlega þannig að þú skráir þig inn á ÖRLÖ reikninginn þinn hér og sýslar með þína áskrift eins og þér hentar. Ef þú lendir í einhverjum vandræðum þá aðstoðar þjónustuverið okkar þig á sales@orlonutrition.is

Við leggjum mikla áherslu á ánægju viðskiptavina okkar og markmiðið er alltaf að þú fáir frábæra vöru á góðu verði. Ef þú vilt skila vörunni sem þú keyptir getur þú alltaf haft samband við okkur á sala@orlonutrition.is og gefur upp pöntunarnúmerið þitt. Við leysum annað hvort málið með því að láta þig fá nýja vöru eða með endurgreiðslu. Í ákveðnum tilvikum gætum við beðið þig um að senda okkur vöruna til baka eða senda hana til einhvers annars sem gæti notið hennar. Í ljósi þess að hvert tilvik er einstakt biðjum við þig um að geyma vöruna þangað til málið hefur verið afgreitt. Við afgreiðum beiðni um skil innan tveggja daga.

Í samræmi við stefnu okkar um að draga úr sótspori sendum við vörurnar okkur eingöngu með landflutningum. Flestar sendingar frá okkur berast innan 2 virkra daga og samstarfsaðili okkar Dropp sér um allt frá a til ö. Í vefverslun getur þú valið hvort þú sækir á einhvern af afhendingarstöðum Dropp t.d. leiðinni heim / úr vinnu eða við biðjum Dropp að skutla sendingunni beint heim til þín.

Vörur ÖRLÖ eru sem stendur aðeins til sölu á Íslandi og í Bandaríkjunum en eftir því sem starfsemi okkar vex frekar munum við færa út kvíarnar til fleiri markaða. Fylgist með!

Skráðu þig á póstlistann okkar

ÖRLÖ Nutrition er vörumerki í eigu VAXA Technologies á Íslandi ehf.

Innskráning á Mitt ÖRLÖ